Aðalfundur Félags Tamningamanna (FT) var haldinn rafrænn þann 18.desember klukkan 19:30.
Félag tamningamanna var stofnað árið 1970 og samanstendur af faglærðum tamningamönnum, þjálfurum og reiðkennurum sem hafa áratuga reynslu og þekkingu á íslenska hestinum og flestum þeim þáttum sem viðkemur honum eins og markaðsmálum. Eitt af aðalmarkmiðum FT er að stuðla að réttri og góðri tamningu og meðferð hestsins með heilbrigði og velferð hans að leiðarljósi. Einnig að fræða og upplýsa um eðli hestsins. Þeir sem eru í félaginu eru oftar en ekki einnig ræktendur og heilt yfir fólk sem brennur af ástríðu fyrir íslenska hestinum.
Kosið var í stjórn félagsins en Fanney Dögg Indriðadóttir og Rúna Björg Vilhjálmsdóttir gengu úr stjórn og er þeim þakkað fyrir frábært og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Inn í stjórn FT koma Henna Johanna Sirén og Unnur Rún Sigurpálsdóttir
Í stjórn FT sitja því:
Sylvía Sigurbjörnsdóttir, formaður FT
Þórarinn Eymundsson, varaformaður
Mette Mannseth, meðstjórnandi
Johannes Amplatz
Henna Johanna Sirén
Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir, varamaður
Unnur Rún Sigurpálsdóttir, varamaður


