Ásetu- og reiðmennskuverðlaun FT á Skeifudegi LBHÍ

Ásetu- og reiðmennskuverðlaun FT á Skeifudegi Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri

Skeifudagurinn á Hvanneyri hefur verið haldinn hátíðlegur á sumardaginn fyrsta síðan 1957. Dagurinn dregur nafn sitt af Morgunblaðsskeifunni, sem eru verðlaun veitt af Morgunblaðinu.

Félag Tamningamanna hefur frá árinu 1971 veitt ásetu- og reiðmennskuverðlaun á Skeifudeginum. Verðlaunin eru veitt þeim nemanda sem þykir skara fram úr í ásetu og reiðmennsku.  Góð áseta stuðlar að betri reiðmennsku og samspili milli knapa og hests.

Að þessu sinni hreppti Guðrún Tinna Rúnarsdóttir þessi virðulegu verðlaun.  Sigrún Ólafsdóttir fyrrverandi formaður FT afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn. Einlægar þakkir fyrir þitt framlag Sigrún.

Félag Tamningamanna óskar Guðrúnu Tinnu innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Mynd: Hulda Geirsdóttir

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *