Hanna Rún Ingibergsdóttir hlaut FT fjöðrina á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna 2026.
Reiðfærni þess sem FT fjöðrina hlýtur skal einkennast af léttleika, lipurð og samspili þar sem saman fer einstök útgeislun og jafnvægi. Knapi og hestur ljóma af heilbrigði, krafti og gleði. Verðlaunin eru veitt fyrir einstaka útgeislun knapa og hests. Hesturinn sé sjálfberandi, sterkur og mjúkur. Reiðmennska einkennist af samspili og léttleika.
Hanna Rún Ingibergsdóttir hlýtur FT fjöðrina fyrir sýningu sína á Hvarmi frá Brautarholti í tölti meistaraflokks. Mikil útgeislun einkennir þetta par, léttleiki og hesturinn einstaklega framhár . Reiðmennskan er prúð og falleg. Hanna Rún er kurteis innan vallar sem utan, ávallt vel til höfð og til fyrirmyndar
Innilegar hamingjuóskir Hanna Rún !
Mynd: Björk Media (Ásta Björk Friðjónsdóttir)


