Sérstakar þakkir til fráfarandi formanns, Súsönnu Sand

Stjórn Félags Tamningamanna vill færa Súsönnu sérstakar þakkir fyrir sitt óeigingjarna starf í þágu félagsins og allt það góða sem hún hefur lagt til í sinni formanns tíð.

Súsanna hefur verið formaður Félags Tamningamanna síðastliðin átta ár, frá 2013 fram til ársins 2021. Súsanna, sem býr yfir einstaklega jákvæðu viðhorfi, hefur brennandi áhuga á íslenska hestinum og öllu því sem honum viðkemur. Hún er einstaklega dugleg að bæta við sína þekkingu og miðla til annarra í gegnum kennslu og einnig sem dómari. Súsanna hefur reynslu á mörgum sviðum hestamennskunnar og hefur það nýst henni í áherslum hennar innan félagsins.

Meðal áhersluatriða Súsönnu var til að mynda FT fjöðrin, sem veitt er fyrir fallega reiðmennsku, léttleika og sjálfberandi hest með einstakri mýkt og útgeislun. Hún lagði einnig áherslu á góð samskipti og setti á laggirnar málþing sem kallaðist “samtal dómara og knapa” þar sem farið var yfir keppnistímabilið ár hvert. Súsanna hefur í sinni formannstíð talað fyrir aukinni menntun og þekkingu á fortamningum og frumtamningum, sem og að staðið verði fyrir reglulegri endurmenntun félagsmanna. Þessar góðu áherslur hennar eru komnar til að vera áfram innan Félags Tamningamanna um ókomin ár.

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *